![]() |
Asus Eee Keyboard
Í dag höfum við ákveðið með félögum okkar hjá ASUS að sýna nokkrar fallegar myndir af Eee Keyboard viðmótinu áður en að þessi vinsæla græja kemur á markaðinn. |
![]() |
InfusionSoft
InfusionSoft hvetur fólk til að nota CMR hugbúnaðinn sinn. Við hönnuðum slatta af fallegum teiknum fyrir það og lögðum mikla ást í viðmótið. |
![]() |
Backup Outlook
Þetta forrit hjálpar þér að hætta að hafa áhyggjur af öryggi tölvupóstsins þíns. Alveg sama hvað kemur fyrir Microsoft Office Outlook 2007 póstforritið eða harða diskinn þinn er alltaf til heildstætt afrit. Við hönnuðum viðmótið og teiknin í þessum hugbúnaði. |
![]() |
SecureMail
Go Secure bað okkur um að hanna ýmislegt fyrir nýju vöruna sína – Secure mail. Þetta forrit verndar netpóstinn þinn gegn óæskilegum aðgangi. Með mikilli einbeitingu hönnuðum við fyrir þá: lógó, notendaviðmót, teikn (e. icon set), box og umslag fyrir geisladisk. |
![]() |
SecureNet
Go secure treysti okkur enn á ný fyrir hönnun á nýju vörunni sinni, Secure Net. Þessi hugbúnaður ver tölvunet fyrir árásum tölvuþrjóta. Að okkar mati tókst okkur að finna upp vel heppnaða myndlíkingu. Það segir okkur að plánetan (það er að segja, nettengingin) sé örugglega varin gegn vágestum sem birtust skyndilega úr geimryki sýndarveraldarinnar. |
![]() |
Shell
Shell heldur áfram jarðfræðilegum rannsóknum og olíu- og gasvinnslu í meira en 40 löndum á heimsvísu. Það á stærsta net áfyllingarstöðva á heimsvísu, sem telur meira en 55 þúsund bensínstöðvar. Við hönnuðum gagnvirkt kort áfyllingarstöðva í þremur af ríkjum Þýskalands fyrir þá. Með því að smella á pumpu getur notandinn fræðst meira um það, til dæmis fengið að vita í hvaða borg pumpan er og heimilisfang þess. Auk þess getur notandinn náð í PDF skjal með korti af öllum pumpunum í malbiksríkinu. |
![]() |
CryptArchiver
Með nútíma dulmálsreikniritum getur þetta forrit dulið hið augljósa. En aðgerðin er viðsnúanleg, ef þú hefur lykilinn, sem er augljóslega ekki gott að týna eða sýna fólki. Við hönnuðum lógóið, viðmótið og teiknin fyrir þetta. |







